Jón Rafnsson   Útgáfa   Nýtt efni  
Framundan
 
Guitar Islancio
 
Hlekkir
 
 
 

Jón Rafnsson er klassískt menntaður kontrabassaleikari og hefur starfað við tónlist í yfir tuttugu ár. Hann hefur allt frá því hann flutti heim frá Svíþjóð árið 1990 verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og leikið jöfnum höndum; jazz, klassík, með danshljómsveitum, unnið í leikhúsi bæði sem tónlistarstjóri og hljóðfæraleikari auk þess að leika inn á fjölda geisladiska. Hann leikur með tríóinu Guitar Islancio og starfar sem kennari við kennaradeild tónlistarskóla FÍH, auk þess að kenna á raf- og kontrabassa við tónlistarskóla FÍH og tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

Nám- og starfsferill

Hljóðfæri

Hljóðritanir